
Við getum ekki kvartað yfir árangrinum á þessari sýningu. Í enskum cocker varð Bjarkeyjar Thank You For The Music (Nói) besti hundur tegundar og fékk sitt annað meistarastig og annað CACIB. Besta tík varð Bjarkeyjar Sóllilja sem fékk sitt annað ísl. meistarastig og annað CACIB. Nói varð fjórði í tegundarhópi 8. RW-13 C.I.E. ISSHCH Bjarkeyjar Take A Chance On Me varð annar besti rakkinn. Ræktunarhópurinn fékk mjög góða umsögn dómarans Paulu Heikkinen Lehkonen.
Í Boxer varð RW-13 ISSHCH Bjarkeyjar Meant To Be besti hundur tegundar og í 2. sæti í tegundarhópi 2. Besti rakki tegundar var Bjarkeyjar Ísar og hlaut hann sitt þriðja meistarastig og getur þar með sótt um íslenskan meistaratitil. Gotsystir hans Bjarkeyjar Ísold varð önnur besta tík og fékk sitt þriðja meistarastig og annað CACIB. Ræktunarhópurinn fékk frábæra umsögn hjá Harri Lehkonen. Í heild var þetta sýningarár gæfuríkt og þökkum við öllum sem hafa gert þetta kleift með aðstoð og velvild.